Rússnesk rúlletta?
8.1.2020 | 07:52
Þann 19. des. sl. féll snjóflóð á veginn við Ljósavatn í Ljósavatnsskarði. Snjóflóðið var um 500 metrar og lokaði veginum í ca. 16 klukkutíma. Maðurinn minn og tveir synir okkar höfðu verið á Akureyri fyrr um daginn. Vegna jólainnkaupa voru þeir seinna á ferð en vanalega og komust ekki heim. Eyddu þeir nóttinni í góðu yfirlæti í Stórutjarnaskóla ásamt fleira fólki.
Ég er þakklát öllum góðum öflum að þeir voru heilir á höldnu. Á sama tíma spyr ég mig hvernig þetta gat gerst. Hvernig stendur á því að seint á árinu 2019 getur 500 metra snjóflóð fallið á hringveg 1 á Íslandi algjörlega óforvarendis? Þetta er þekkt snjóflóðasvæði. Eru ekki til einhverjar græjur sem meta hættuna á snjóflóðum? Einhverjar aðferðir til sjá fyrir líkurnar á snjóflóði?
Snjóflóðið komst í fréttir en lítil umræða skapaðist um það og lítill áhugi. Eini maðurinn sem velti fyrir sér alvarleika málsins var Einar Sveinbjörnsson en hann setti eftirfarandi færslu á facebook:
Þetta er vissulega ekki mikil umferð en dágóð engu að síður. Kannski má líkja þessu við rússneska rúllettu, að líkurnar á að lenda í snjóflóði séu ekki mjög miklar! En það vill þannig til að ca. 20 börn á aldrinum 0.5-16 ára aka þennan veg tvisvar á dag flesta virka daga vetrarins. Annars vegar á leið í skólann sinn og svo aftur heim. Þar á meðal drengirnir mínir svo málið er mér talsvert skylt. Það snjóar og snjóar og mér líður ekki vel.
Þann 1. jan. sl. birti Dagbjört Jónsdóttir sveitarstjóri Þingeyjarsveitar Bréf til íbúa. Get ég ekki skilið upplýsingarnar þar öðruvísi en svo að ekkert reglubundið snjóflóðaeftirlit sé á veginum á þessari stundu! Dagbjört og Halla Bergþóra lögreglustjóri á Norðurlandi eystra hafa nú báðar sent beiðni til snjóflóðavaktar Veðurstofu Íslands og til Vegagerðarinnar og óskað eftir reglubundnu snjóflóðaeftirliti á svæðinu. Dagbjört hafði áður sent inn slíka ósk en henni virðist hafa verið hafnað. Mér þætti gaman að vita hvaða forsenda var fyrir þeirri neitun í ljósi flóðsins þann 19. desember.
Ég skora á snjóflóðavakt veðurstofu Íslands að hefja reglubundið eftirlit á veginum í Ljósavatnsskarði.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.